Áfram veginn
Leið mín í fríið lá hér um veg sem liðaðist rétt eins og slanga. Hamskiptin töldum við all hættuleg og holur á slóðanum langa. Heimferðin seinna var sannlega góð. Silkimjúk áferð á vegi. Ekki á dugmiklum strákunum stóð; stífluðu holur á degi!
Höf. GIS

