Högg í holu

Mig fýsti í holu í höggi en hirti ei nóg um það sem slíkt, því að ólukkans bévítans böggi mig bar, svo að engu var líkt. Því það setti að mér dulitla golu — og voru gerð að mér höggin í holu.

Höf. Hermann Stefánsson

Um ljóðið

Rangsnúið golf-kvæði.