Hvert sem farið er

Af innri gleði arkað‘ af stað um andlitið ljúft lék gola Í andartaks ógáti hnaut en um hvað? Um öxl leit þar blasti við hola Í bíltúr ég brunaði annan dag beint út á þjóðveginn víða Við hristing og holur nánast fékk slag Hve lengi má viðgerða bíða?

Höf. Heiða Dögg Jónsdóttir

Um ljóðið

Ljóðið er í fullri lengd þrjú erindi en 250 stafa hámarkið þýddi að stytta varð ljóðlínur og sleppa miðerindinu sem fjallaði um hjólreiðartúr. Þrír ferðamátar, þrjú erindi, holur hvert sem farið er.