Þráláta holan
Alltaf sama holan á sama stað, sama hvað. Stundum er reynt að laga, það dugar í örfáa daga, þvílík sorgarsaga. Geðheilsan komin í mola, erfitt er þig að þola fjandans þráláta hola.
Höf. óþekktur
Um ljóðið
Hér er að sjálfsögðu verið að vísa í eina ákveðna holu á bílaplaninu fyrir utan blokkina mína. Það er alveg sama hversu oft er reynt að laga hana hún kemur alltaf aftur og aftur. OG AFTUR!

