Vegljós
djúp hola full af regnvatni hvassar brúnir ramma inn spegilmynd sólarinnar ég píri augun hægi ferðina sneiði fimlega fram hjá meistaraverkinu það boðar jú sjö ára ógæfu að brjóta spegil
Höf. Guðfinna Rúnarsdóttir
Um ljóðið
Tilraun til að sjá eitthvað jákvætt við holur ;-)

