Vegurinn
Hann styttist í annan endann vegurinn. Að baki eru holur, stórar og smáar sumar nánast gil eða gígar. Inn á milli eru yndislegir sléttir blettir. Og nú ertu komin á beina veginn, rólegheit og barnabörn. Verst hvað það er stutt eftir.
Höf. Gulla
Um ljóðið
Smávægileg yfirsýn um lífið og þann veg sem við förum öll eftir

